fbpx

Nærandi ferðaþjónusta – Kynning hjá Dokkunni 25.janúar

Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Nærandi ferðaþjónusta – Kynning hjá Dokkunni 25.janúar

janúar 25@ 9:00 f.h. - 9:45 f.h.

Dokkufundurinn er haldin í samstarfi við Íslenska ferðaklasann

Nærandi ferðaþjónusta (e. Regenerative Tourism) er hugtak sem hefur verið að hasla sér völl í umræðu um þróun ferðaþjónustunnar undanfarin ár, með áherslu á áhrif hennar á náttúrulegt og menningarlegt nærumhverfi sitt og heildræna nálgun á stefnumörkun og þróunarvinnu. Þar er hugað að ferðaþjónustunni og ferðaþjónustuaðilum sem þátttakendum í samfélagsþróun, frekar en að horfa á atvinnugreinina eina og sér.

Íslenski ferðaklasinn hefur undanfarin ár leitt verkefni um Norræna nærandi ferðaþjónustu (Nordic Regenerative Tourism, NorReg), sem fjármagnað er af Norrænu ráðherranefndinni. Innan þess verkefnis er einkum horft til svæðisbundinnar þróunar og starfsemi lítilla og örsmárra fyrirtækja innan atvinnugreinarinnar.

Á Dokkufundinum, sem haldinn er i samstarfi við Íslenska ferðaklasann, munum við fá innsýn í hugmyndafræðina á bak við nærandi ferðaþjónustu og verkefnið um Norræna nærandi ferðaþjónustu.

Hver verður með okkur?

Ólöf Ýrr Atladóttir, verkefnisstjóri NorReg verkefnisins

Ólöf Ýrr Atladóttir starfaði sem ferðamálastjóri árin 2008-2017 og í Sádi Arabíu að ferðaþjónustuverkefnum 2018-2021. Hún hefur undanfarin ár rekið ferðaþjónustufyrirtæki nyrst á Tröllaskaga, ásamt því að sinna ráðgjafaverkefnum af ýmsu tagi.

Hvar verðum við?

Á vefnum – í Teams

 

Þetta er opinn Dokkufundur og allir velkomnir. Vinsamlega sendið tölvupóst á dokkan@dokkan.is til að fá sendan tengil á fundinn. 

Upplýsingar

Dagsetn:
janúar 25
Tími
9:00 f.h. - 9:45 f.h.
Viðburður Category:
Vefsíða:
https://dokkan.is/fundur/wanderer/